|
|
30.01.2006 13:58:32 / Hildur Gyða
»
27.01.2006 13:43:41 / Hildur Gyða
Jæja hvað segiði þá... Ég og kríli
segjum bara allt gott Erum hress sko!!! finn það á mér að
dagurinn í dag verði skemmtilegur ég er allan vegan búin að
finna mér e-hvað til þess að gera!! var að klára að fixa
til í herberginu mínu og skipta á mínu elskulega
rúmmi,,,svo ætla ég eftir þetta bogg að skella mér út í bílskúr
og baða hundana mína og þrífa rauðu þrumuna!!! Svo klukkan 6
þá er ég að fara í vinnuna og baka pizzur sjíbbí sjéí... Hummm
helgin hjá mér verður hin skemmtilegasta Minn elskulegi
Pabbi og minn Yndislegi bróðir eru að koma af sjónum og jiii
minn hvað það verður gott að fá þá kjella heim á morgun
Þannig það verður ekki eins tómlegt hérna hjá mér og
mömmu En við mæðgur ætlum að reyna að komast á ak á
morgun og fara í smá verslunarleiðángur það er e-hvað sem
okkur finnst ekki leiðinlegt... ætla að reyna að finna mér
flotta skó og e-hverja flotta úlpu!!! skvísí
skvísi
Í gær bauð mín elskulega Stella mér á
rúntinn og við röbbuðum saman um ýmislegt,,,heheheh þar á meðal ég
og að vera á milli tannana á kjaftakellingum hér í bæ
hehhehe,,hélt að þetta væri nú staðið yfir að fólk væri nú að jafna
sig á því og meðtaka það að ég væri ólétt en "nei nei" liðið er en
að velta sér uppúr þessu skil ekki hvernig þetta lið nennir að
eyða lífinu sínu í að gramsa í einkalífi fólks,,, (þá er ég
ekki bara að tala um það sem snýr að mér) hvað þá þegar
þetta lið hefur akkurat enga ástæðu fyrir að tala um aðra því það
er svoleiðis heill skítahaugur á bakinu á því fólki,,en það gerir
það til þess að fela sjálfan sig og greinilega hefur akkurat ekkert
betra að gera en að sitja yfir kaffibolla og tala um allt annað en
sjálfan sig En svona er það víst að búa í litlu
bæjarfélagi...það er svo langt því frá að þetta fari í pirrurnar á
mér veit það bara að sumar af þessum "kjaftakellingum" eru að koma
hingað inn og lesa bloggið til þess að
forvitnast..heheheh...
En jæja ég er að pæla að skella mér út í
bílskúr með litlu gjammarana mína og baða þá all rækilega!!!
þannig... bye my lovers,good bye my friends... "flott lag by the
why!!!"
*Hildur & litli
engillinn"
»
22.01.2006 12:03:43 / Hildur Gyða
Hæ hæ people,,,Já það er allt gott að
frétta af mér og litla krílinu,,, erum eins og ég segi eld
spræk Helgin hjá mér er nú bara búin að vera í rólegri
kantinum þar sem ég átti vinnuhelgi Þannig ég er bara búin að
vera í vinnunni,,, heimsótti hinsvegar Esther gellu á
föstudaginn og fékk að knúsast aðeins í Guðmundi Orra Sem ég
þarf að fá að gera miklu oftar
Í gær sat ég inní stofu og var að horfa á
sjónvarpið þegar ég fékk sms frá henni Stellu minni,,,hún bjargaði
náttla bara kvöldinu fyrir mér því ég hló svo mikið að
Sms-inu Það er sko eiginlega titillinn sem segir margt um það
sms!!!! hehehe sko þetta var nú þannig að ég og
Stella vorum að vinna saman nirðá Heimaval í svoltinn tíma og
það átti að taka okkur af vöktunum sem við vorum settar á saman því
það var alltaf svo mikið fjör þegar við vorum að vinna saman
Svo það eru til svo mörg skemmtileg og FYNDIN atvik sem var aðeins
á okkar vöktum sko frönskupotturinn var þannig að þú þurftir að
taka hrærivélinna úr sambandi undir einum vaskanum tils að setja
hinn frönskupottinn í samband...sem við gerðum alltaf þegar það var
brjálað að gera,,, og ég var búin að liggja þarna undir vaskinum og
náði bara ekki að taka helv...klónna úr sambandi og ég sem er ekki
beint þolimóð manneskja,,,hlutirnir eiga að gerast núna!!! En sko
innstungan var ekki alveg föst við vegginn þannig þú þuftir að
passa þig að fá ekki rafmagnsstuð þannig ég gargaði á Stellu
greyið og bað hana að reyna að kippa henni úr sambandi,,, svo
byrjaði hún að hjakkast á henni og tók utan um allt heila
klabbið... svo heyrðist allt í einu "AHHHHHHH ÉG FÉKK STUÐ" ég hélt
að ég myndi míga á mig þegar ég sá hana halda um hendina alveg að
drepast!!!! ég gat ekki afgreitt fólkið frammi ég hló svo
mikið,,,stella vissi náttla ekkert að það mátti ekkert taka í allt
draslið,,það þurfti nebbla að beita smá tækni!!!!!
þessu hlógum við af allt kvöldið 
Svo var það annað dæmi,,þá var Stella
bara eiginlega nýbyrjuð og hún var svo óörugg að dæla bjór,,, svo
var fótboltaleikur og stella fór framm að afgreiða og var byrjuð að
dæla í bjórglasið,,svo kemur hún inn og biður mig um að hjálpa sér
að dæla á bjórinn því það kæmi alltaf svo mikil
froða þegar hún væri að dæla þá sagði ég þessu frægu
settingu sem bjargaði vaktinni,,,, "dæla,dæla hvað ertu eiginlega
að pæla" hehhehee.... svona var gaman hjá okkur í vinnunni,,gæti
sagt ykkur endalausa punkta um "vaktirnar með Stellus"
hehehe,,,Stella manstu líka þegar þú varst e-hvað voða hissa á
kallinum sem sæti inná bar og þú sagðir að hann myndi
hristast svo óeðlilega mikið,,, ég náttla kíkti inná bar þá
var þetta hann Böðvarr félaginn þinn sem var að stappa niður
löppunum,,, þá þurfti Stella náttla að fara studdera hreyfingarnar
og vááááá hvað þú náðir honum vel  þá held ég að ég
hafi pissað á mig hehehe!!!! Ohhhh þetta voru
skemmtilegir tímar Stella mín,,, væri meira en til að við værum enn
að vinna saman á gamla góða Heimaval
En jæja ég nenni þessu ekki lengur er
farin að taka mig til fyrir vinnuna...
*bæ í bili*
*Hildur Gyða*
»
16.01.2006 23:30:21 / Hildur Gyða
Verður mar ekki að blogga á þessu!!!!
Það er allt gott að frétta af skvísunni og litla krílinu Við
erum ávalt hress sko!!! Vaknaði klukkan hálf 10 í morgun og
fór í mæðraskoðun,, Og alltaf bráðna ég þegar ég fæ að
hlusta á hjartsláttinn!!! Jiii minn hva það er krúttudúllulegt
En já það kom allt vel út og lilli bara sprækur!!! enda get ég
sko ekki kvartað yfir neinu,,finn ekki og hef ekki fundið fyrir
því að ég sé ólétt sem er náttla mjög gott,,, skellti mér
meira að segja í pallatíma Jiiii minn við erum að tala um
ÚTRÁS.... Mmmmm hva mér leið vel á eftir!!! HEPPIN ÉG
fer í sónar aftur 10. feb... mín er að farast úr forvitni
langar svo að vita hvort kynið ég ég er með En það kemur í
ljós hvað mar gerir!!!
Helgin var bara fín í alla staði,,það sem
ég er búin að hafa það gott!!! ég og mamma erum búnar að láta fara
svo vel um okkur!!! Enda er ekkert djamm á manni eins og var
kjellingin er orðin svo róleg!!! tókum okkur DVD og breiddum úr
okkur í stofunni BARA NICE SKO...
Svo er það ein pæling sko,,,,
haldiði að kjellingin verði ekki tvítug 1.febrúar!!! ÓJÚ,,, uffff
tvítug....jiii minn!!! En það er sko smá háskólapæling hvort mar
eigi ekki að halda svaka teiti!!! svona í tilefni þess Langar
gegt að leigja hús og halda e-hvað svaka partý fyrir vini og
vandamenn svo má náttla ekki gleyma því að ég og Mamma eigum
afmæli sama dag!!! já hún eignaðist mig á afmælinu sínu þannig
hún er að verða 45 ára þessi elska!!! Er hægt að biðja um betri
afmælisgjöf!!! ÓNEI En þetta er en í
vinnslu,,þannig
JÆJA,,,,erað pæla að fara að glápa á
tellí-ið og fara svo að sofa í hausinn á mér
*Kv.Hildur og litli
engillinn*
»
09.01.2006 23:20:19 / Hildur Gyða
Jæja hvað segiði þá...veit að ég er
geggjað löt og allt það en það er bara búið að vera nóg að gera
hjá mér þannig ég hef bara ekki gefið mér neinn tíma tils að
blogga fyrir ykkur!!! En það er allt gott að frétta af mér og
litla krílinu við erum eld hress!! get ekki sagt það að ég
finni mikið fyrir því að vera ólétt Enda þarf ég oft að klípa
mig þegar ég er að vakna og þegar sé kúluna
mína,,,sem er orðin all nokkuð myndarleg hehehe... En annars
þá get ég ekki kvartað undan neinu og líður bara rosalega
vel!!! Á morgun ætla ég að reyna skella mér í pallatíma ef
ég fæ að breyta vinnu tímanum mínum,,,já þið haldið örugglega að
kellingin sé orðin alveg snar en þá ætla ég að vera með í
pöllum mar fær ekki fallega svipin frá sumum þegar mar minnist
á það en mér er sama,,mar er þræl vön palladrotting og fer bara
hægar þegar mar er með lítið kríli í maganum
En í dag var ég að vinna frá klukkan 9
til klukkan 12,fór heim borðaði og horfði á nágranna!!! fór
svo heim til Núma frænda og tók íbúðina hans í gegn!!! VIÐ ERUM
EKKI AÐ TALA UM NEITT LÍTIÐ DRASL Bjórdollur og
fínerí,,,bara 2 fullir ruslapokar takk fyrir Jiiiii minn hélt
ég ætlaði að vera ellidauð þegar ég fattaði alltí einu að klukkan
var orðin hálf 4 og þá þurfti ég að fara vinna aftur til hálf 7
En það er sko langt í frá að ég sé búin að taka til hjá
honum...verð að skila þessu tipp topp frá mér!!! Enda ekki annað
hægt fyrir þessa elsku
En jæja er að pæla að skella mér í bað og
skrúbba af mér rykið sem ég hef náð mér í í dag
heheheh... reyni að vera duglegri að blogga þangað til ég geri
barnalands síðu fyrir krílið
*Góða nótt esskurnar*
*Hildur og bumbi*
»
04.01.2006 20:13:11 / Hildur Gyða
Jæja elskurnar
mínar,,,áhvað að skrifa nú smá af því ég er ekki búin að nenna
að blogga um jólin,,skamm skamm Hildur veit ég er bara búin að
vera í afslöppun um jólin og ekkert nennt að töllunörrast En
annars er allt gott að frétta af mér og litla kúlubúanum!! hann
er sprækur sko,,, er farin að vinna núna eins og hrotti þannig
lítill tími tils að hanga í töllunni en sko er að pæla að
hafa það ekki lengra núna en ég LOFA að blogga á morgun og hafa
það e-hvað skemmtilegra
En fólk,,,þá er það að svara þessum spurningarlista
um mig og tjékka hversu vel þig þekkið mig...??? jaaaa mar
hreinlega spyr sig...hvernig væri það svo að vera pínu
virk/ur og gefa mér e-hvað skemmtilegt lesefni
thíhíhíhí....
1. Hver ert
þú? 2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og
hvernig
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kissa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu
afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú
sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á
mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað
myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til
að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt
svo ég geti skrifað um
þig?
Jæja þar hafiði
það elskurnar og takk fyrir að
svara
*Gyðan*
»
01.01.2006 22:26:05 / Hildur Gyða
»
23.12.2005 17:15:37 / Hildur Gyða
Já þá er þetta bara allt saman að
skella á... ég er svo ekki komi í neitt jólaskap var komin i
ægilegan gír um dagin,þá snjóaði svona ekta jólasnjó þá var ég
að farast úr spenning...En allur þessi spennigur er horfin og ég
er ekkert að fatta það að jólin eru á morgun En kanski það
kemur á morgun,,það vona ég allan vegan!!!
Gat ekkert sofið í nótt,,,loksins þegar
ég náði að sofna þá var klukkan orðin 3 var alltaf að vakna og
fara framm svo var ég alltaf að vakna og kíkka á klukkuna,, svo
þegar ég sofnaði þá byrjaði mig að dreyma e-hvað bull og allt svo
raunverulegt þannig ég fékk ekki mikinn svefn í
nótt
Jamm í gær fór ég í heimsókn til Sunnu
gellu og horfðum á tellí-ið og spjölluðum saman um allt og
ekkert  tók svo einn hring og þá þurfti ég
endilega að sjá kött sem var örugglega ískalt og hann var e-hvað
voðalega einmanna,,, já þetta er held ég frægi villikötturinn sem
sumir aðilar eru búnir að reyna skjóta greyið á hvergi
heima,,,var mikið að pæla í því að taka hann með mér heim en svo
þorði ég ekki að fara og ná í hann því hann myndi pott þétt
skraddsa mig alla til svo er ég pínu hrædd við ketti,,, eða
villiketti
En nóg um það svo í dag þá tók ég til í
herberginu og gerði það reddí fyrir jólin,,,á samt eftir að skipta
á rúmminu sem verður gert þegar ég vakna á morgun... svo setti ég
hundana mína í jólabaðið sitt og greiddi þeim fór svo upp til
Júlla frænda og skúraði allt hjá honum!!! Þannig jólin meiga bara
fara koma hjá mér,,, get allan vegan ekki gert mikið meira sem
snýst um hreingerningu Þannig núna ætla ég að
skella mér inní stofu og setja tærnar uppí loft og slappa pínu
af....
*Gleðileg jól öll sömun,,hafiði það sem
allra best um jólin*
*Jólakveðja Hildur og litla
krílið*
»
20.12.2005 21:09:19 / Hildur Gyða
Verður mar ekki að blogga á þessu...
ég held það bara!!! það er allt gott að frétta af mér sko,,,hvar
á ég að byrja... sko í gær var kellan bara virk og skellti sér í
það eftir langa heimsókn hjá Svanborgu að fara þrífa allan
ískápin jamm ég reif allt útúr honum og græjaði allt pláss
fyrir jólamatinn,,,svo eftir það skellti ég mér útí búð og
verslaði smá fyrir heimilið... jamm svo þegar það var búið
skellti ég mér í það að þrífa e-hvað af herberginu,,, svo
um kvöldið þá fór ég til Diljá og hún lagaði neglurnar á
mér Svo fór minn og rúntaði smá með lúlla mínum,,, í dag
þá fór ég til ak með pabba og Lúlla í smá verslunar leiðangur
til að "reyna" klára þessa blessuðu jólagjafir,,, Jiiii minn
hvað ég get orðin geðveik þegar mar er búin að áhveða hvað maður
ættlar að kaupa og það er búið!!!! Ohhhh lenti í því í dag og
vááá hvað ég var fúl EN það þýðir ekki að tala um það... svo
fórum við í matarboð hjá ömmu og afa á ak og vorum bara rétta að
koma heim,,,!!!!
Er að pæla að skella mér útí bílskúr og
og þrífa rauðu þrumuna,,,jiiii minn hún er svo drullug að utan að
það er hægt að ruglast á litnum á henni,,, brún með smá rauðum
lit það hefur nebbla alltaf verið hef hjá mér að taka
hana alveg í gegn,,, þá meina ég bón og læti þannig þrumar
glansar um götur ólafsfjarðar um jólin!!!!!!
Sko ef textinn er allur í hakki þá er það
vegna þess að ég er ekkert að pæla í því hvað ég er að gera... er
að hugsa um e-hvað allt annað ég er að hugsa um e-hvað sem
snýst ekkert um þetta blogg
*Hildur út á túni* Takk og
bæ*
»
18.12.2005 17:40:59 / Hildur Gyða
Helgin á enda og bara búið að vera
leti á manni í dag!!! ætla ekki að fara breyta því neitt það sem
eftir er að deginum,,,, Helgin bara búin að vera fín Á
föstudaginn fór ég ekki mikið útúr húsi þar sem ég lá í leti í
faðmi fjölskildunar.. jamm við famelían sátum ínní stofu
og horfðum á idolið og svo á eina ræmu Ohhh það er alltaf
notalegt!!! En svo í gær þá fór ég til ak til minnar elskulegu
Köta V. og heimsótti hana,,,það var partý hjá kellunni og ekki
vantaði fólkið hjá henni,,,Held að hún eigi indislegustu
foreldra í heimi,,, (náttla fyrir utan mína) þau voru
bara sallaróleg inní herbergi SOFANDI btw,,,meðan liðið var
með standi partý frammi svo lá leiðin niðrí sjalla á
sálina sem ég btw ætlaði ekki að fara á... það var bara
svona helv fínt sko,,,ég dansaði nú ekki mikið aðalega röltandi
um með Sylvíu minni svo hitti ég Sunnu og við sátum og
spjölluðum það sem eftir var að ballinu!!! heheheh og biðum
eftir því að klukkan væri orðin 4 gegt stuð!!! svo vorum
við ekki lengi að koma okkur heim því ég var farin að sjá rúmmið
mitt í hillingum
Jiiii minn lagið þarna með flestu
íslensku söngvurunum "sameinust hjálpum þeim" sko sá myndbandið
áðan og dí það byrjuðu bara tár að leka niður kinnarnar mínar,,,sjá
öll þessi grey úti sem fá litið sem ekkert að borða og fullt að
litlum börnum sem degja Guð hvað þetta er sorglegt,,,svo
eftir jarðskjálftan þá eru þau bara í e-hverjum tjöldum og hafa
ekkert húsaskjól þetta fer svo í mitt pínkulitla hjarta... man að
amma Massý var svo ótrúlega viðkvæm fyrir þessu,,,alltaf þegar hún
sá myndir að litlum börnum vera sálast úr hungri og kulda,,,þá fór
hún alltaf að gráta... við erum greinilega MJÖG líka með
þetta
En langaði að setja inn hérna sögu... góð
áminning að vera þakklát fyrir það sem við höfum!!!
Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í
stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að
kaupa fyrr. Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í
hljóði "Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að
fara á svo marga staði". Jólin eru alltaf að verða meira og meira
pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og
farið að sofa og vaknað svo eftir jólin. Allaveganna, ég kom mér í
leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðinn, hugsandi hvort að
börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smátíma af
leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á
dúkku upp við brjóstið sitt. Hann strauk hárið á dúkkunni og
virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri
konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi
ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú átt
ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að
bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór
fljótlega. Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég
labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa
dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði
svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi
gefa sér hana. Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir
að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa
áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur
ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu
dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað".
Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta. "Systir mín er
farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að
fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með
dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana". Hjartað mitt
stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði "
Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax. Ég bað hann
um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann
mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka
að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei" "Ég
elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en
pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur
minni". Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög
hljóðlátur. Ég teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening
upp og sagði við strákinn "en ef við athugum aftur í vasann til að
tékka hvort að þú eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn
"ég vona að ég eigi nóg" Ég bætti smá af mínum peningum við án þess
að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur
peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur. Litli
strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um
að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt
dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín" "Mig langaði líka
að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu, en ég
þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að
kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós". Nokkrum mínútum
seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með
allt öðru hugarfari, ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður
keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa
voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái"
Fjölskyldan varð að ákveða hvort að það ætti að setja hana í
öndunarvél eða ekki, af því að hún unga konan myndi ekki vakna úr
dáinu. Var þetta fjölskylda litla stráksins? Tveim dögum eftir að
ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið.
Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum
rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér
í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í kjól,
haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla stráknum og
dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst
til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar
og systur, er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni
svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.
Verið góð við hvort annað Hildur
Kveður með smá sorg í sínu pínkulitla hjarta
»
15.12.2005 15:30:34 / Hildur Gyða
Jæja hva segiði þá... ég
segi bara mest lítið sko,,,er svo að drepast úr kvefi og er
hnerrandi allann daginn ekki gaman,,, svo er mar svo nefmælt
að það varla skilst það sem ég er að reyna segja en þetta
verður vonandi farið fyrir jólin,, nenni ekki að vera svona um
jólin En já er bara búin að vera að gera ýmislegt í dag,,fór
að versla í matin í kvöld svo setti ég alla jóladúkana í
þvottavél og þarf að strauja þá...svo er ég búin að hengja upp
jólaskraut!!! jább kellingin er búin að vera virk í
dag
Erum að fara á morgun til ak ég og
lúðvík að versla jólagjafir og svo ætla ég að kaupa mér jólaföt og
fullt að drasli,,,ætla að flippa í búðunum,,, njeeee er það
söss söss söss... SORRY,,,var ekki búin að blogga þurfti áðan að
skreppa uppí búð og þá hitti ég Lísu mína og hún vildi endilega fá
mig með sér uppí rækt að púla,,, var bara að koma heim,,,
Jiiii minn manni líður svo vel eftir svona sprikl alltaf gott
að fá smá útrás í ræktinni þannig mitt púl í dag er
búið...
Var að pæla í gær þegar ég var að
fara sofa hva mig langaði í flott málverk,,Mamma og pabbi eiga
nebbla svo gegt flott málverk eftir konu sem heitir Elín Rós,,, En
svo náttla fattaði ég það að það er einn snillingur í minni
elskulegu fjölskildu sem er svona góð í að gera málverk,,, jább hún
Hildur Magg er algjör snilli,,, spurði hana þegar ég var hjá henni
um daginn hver hefði gert mynd sem var inní svefniherberginu hennar
og Ingvars... Þá var það sko Maður sem hélt utan um konu sem var
ólétt... ekkert smá falleg nei nei þá málaði kripplingurinn
hana,,,Man það var svo ÓGEÐSLEGA pirrandi að sitja hliðina á henni
í myndment,hún teiknaði svo vel og málaði gegt flottar myndir!!!
manni fannst sínar myndir bara vera frat miða við hennar:hehe: En
jamm ég hef þetta sko alls ekki í mér
Jæja er farin að gera e-hvað af
mér,,, bæ í bili 
*Hildur*
»
12.12.2005 13:39:08 / Hildur Gyða
Jább hvað haldiði...ég hef loksins
áhveðið að blogga nokkur orð váááá hvað maður hefur sig ekki í
það að blogga stundum helgin loksins á enda og aðeins 2 helgar
í jólin,,,eða jólin eru á laugardeginum ef það hefur farið
framhjá ykkur ég er komin í svona nettan jóla fílíng,,,skil
það ekki,,finnst aldrei eins jólalegt eins og þegar það snjóar
svona jólasnjó,,,dett úr gírnum þegar það er e-hvað
leiðindaveður,,rok og rigning þoli það ekki...En það er annars
bara allt gott að frétta af mér,,,er ekki að vinna í dag þannig
ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki að vera
ótrúlega sæt í mér og pakka inn öllum jólagjöfunum fyrir
mömmu,,, sko þá er mín engan veginn inní myndini það á
náttla að koma á óvart
'I morgun fór ég í
mæðraskoðun svo krúttudúllulegt,,!!! fékk að heyra
hjartsláttin og vááá það er eins og það sé bankað í hausin á manni
"hérna hæ vissuru að þú ert að verða mamma" Ohhh mar bráðnar
alveg,,,heyra í litla krílinu þannig þetta er þvílíkt
spennandi og það eru allir svo ótrúlega
spenntir
Er að fara inná ak á laugardagin að
kaupa jólagjafir með Lúlla mínum,,, við ætlum að kaupa e-hvað
sniðugt handa gamla settinu,,, svo má náttla ekki gleyma því að ég
er að fara gera mig sætari fyrir jólin jiiii minn hva það
verður gott,,fara í litun og vax í hár og heilsu,,,svo á ég eftir
að tjékka með klippingu!!!Svo náttla er bara búðarráp og eyða
peningum
Jæja esskurnar er farin að gera
e-hvað að viti
*Kv.Hildur og litli
engillin*
»
06.12.2005 20:52:48 / Hildur Gyða
»
04.12.2005 15:04:15 / Hildur Gyða
»
29.11.2005 23:02:23 / Hildur Gyða
Hæ...Jæja hva segiði þá???? Það er
allt gott að frétta af mér as always í gær þá komu pabbi
og Lúðvík heim af sjónum mér til mikillar hamingju þar sem ég
var farin að sakna þeirra mjög mikið alltaf gott þegar mar
veit af þeim heima en ekki einhverstaðar útá ballar hafi ég
og Lúlli minn fórum til ak og fórum í smá búðarleiðángur og svo
í ljós vááá hvað það var GEGGJAÐ notó enda þegar ég kom
úr bekknum þá fannst mér ég ótrúlega brún og sæt miðað við
hvernig ég var orðin þoli ekki að vera hvít..mar er svo
laslegur og eins og það vanti allt blóð í mann!! mar er eins og
lík njeee ekki alveg!! En jamm svo settum við í 5. gírinn
og brunuðum heim til 'Oló við systkynin tókum svo einn rúnt
um kvöldið og svo heim að kúra um miðnættið
Vaknaði við það í morgun að Halla Björg
ar að "reyna" að skríða úr rúmminu klukkan hálf 10...hehehe þessi
elska verður svo ánægð þegar hún sér að mar er vökuð og hún þarf
ekki að læðast lengur ,,Hélt að ég væri sú morgunhressasta en njeee
litla prinsessan er sú allra hressasta það þarf 2 manneskjur að
þjóna henni þegar hún vaknar Svo skreið ég uppí rúmm til
Lúlla og við horfðum á Mr. and Mrs. Smith og reyndar er það geggjuð
mynd!! erum að tala um FULLKOMIÐ PAR djö eru þau
HOTTÍ...allann vegan sofnaði ég ekki yfir henni... fór svo í vinnu
klukkan 1 til 6 og beint heim í tiltekt uppi hjá Júlla frænda
hengdum upp seríurnar hjá honum þannig Höllin er öll að skírast!!!
en það vantar töluvert uppá að hún verði fullkomin
jiiiiiii hlakka svo til Svo á morgun þá ætlum
við að klára að skreyta inni og baka jólakökurnar...
Í sambandi við titillinn þá er það
skot á þig Thelma mín!!! veit að það er gaman að lesa bloggið minn
en sko vááá vissi ekki að mar væri svona vinsæl gella sko
thíhíhíhí...Thelma Lov ya honzy
Var að pæla í vinnunni í dag,,sko í
sambandi við DV. þetta er svo mikið sorablað ætli
helmingurinn sé sannur sem kemur í blaðið!! veit það bara í dálknum
sem það kemur um bloggheiminn,,,þá birta þeir bara blogggreinarnar
hjá einhverjum og einhverjum!! gerðu það hjá Kötu V.vinkonu og
hún var ekki sú sáttasta!! enda skilur mar það,,,ég yrði
crazzzzz svo eru þeir alveg snillingar að koma með e-hverja
krafsandi grein á forsíðuna og svo er mar voða spennt að lesa hvað
þeir eru nú að fjalla um þá er ekkert í samræmi við titilinn framan
á og inní blaðinu æiii jiiii þoli ekki svona blöð,samt asnast mar
tils að lesa þau svona er mar skrítinn
*Jæja Hildan kveður með fullt að pælingum
í heddinu*
*Gyðan*
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|